Bensínið hefur lítið hækkað í Húsdýragarðinum

Bensínið hefur lítið hækkað í Húsdýragarðinum

Kaupa Í körfu

Hagkvæmt Þeir sem vilja spara í bensínkaupum ættu kannski að bregða sér í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn og taka bensín þar, lítrinn kostar einungis 0,57 krónur. Sá böggull fylgir þó skammrifi að bensínið dugar bara á sérstaka bíla sem ætlaðir eru til aksturs innan garðs, en þá hentar fínt að keyra bara hring eftir hring í fallegu umhverfinu, eins og þessi ungi maður gerði á dögunum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar