Stokkið í sjóinn - Hafnarfjarðarhöfn

Stokkið í sjóinn - Hafnarfjarðarhöfn

Kaupa Í körfu

ÞRÁTT fyrir grámygluna á höfuðborgarsvæðinu framan af degi í gær rofaði til seinni partinn og sólin spókaði sig yfir höfuðstaðnum og nágrenni. Alkunna er að þá lætur ungviðið ekki á sér standa og þessir ungu herramenn gerðu sér að leik að stökkva með tilþrifum í sjóinn við Hafnarfjarðarhöfn. Þrátt fyrir geisla sólar var ekki laust við að til eyrna bærist eilítið glamur tanna, enda Norður-Atlantshafið ekki ýkja hlýtt.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar