Árbæjarsafn - búningadagur barna

Árbæjarsafn - búningadagur barna

Kaupa Í körfu

Hún Kristín Helga Ómarsdóttir þáði hjálp hjá Dóru Jónsdóttur á Árbæjarsafni í gær við að klæða sig í fallegan þjóðbúning til að láta taka af sér mynd. Búningadagur barna var á safninu og hafði íslenskum þjóðbúningum á börn verið safnað saman og bauðst gestum að koma með börn sín til að láta taka myndir af þeim í þessum fallegu klæðum. Sérfræðingar í þjóðbúningum spjölluðu við gesti og var þó nokkur handagangur í öskjunni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar