EM Finnland

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

EM Finnland

Kaupa Í körfu

VONBRIGÐI. Það er orðið sem fyrst fellur af munni flestra viðmælenda minna hér í Finnlandi eftir að ljóst varð að íslenska kvennalandsliðið næði ekki markmiði sínu. „Stelpurnar okkar“ fara ekki í 8 liða úrslit Evrópumótsins eins og þær ætluðu sér. Þær fara heim eftir rimmuna við heims- og Evrópumeistarana frá Þýskalandi í Tampere á morgun. Eins og keppnin hér hefur þróast hefðu þær vel getað mætt gestgjöfunum, Finnum, í 8 liða úrslitum ef vel hefði gengið, og þá hefði verið fyrir hendi gullið tækifæri til að fara enn lengra. MYNDATEXTI Sara Björk Gunnarsdóttir brá á leik á æfingu landsliðsins í gær og lyfti Dóru Maríu Lárusdóttur, naumlega.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar