Æfing landsliðsins

Æfing landsliðsins

Kaupa Í körfu

KRAFAN í Noregi er að Norðmennirnir landi þremur stigum á móti okkur. En það er mikið búið að skrifa um það í Noregi að á pappírunum séum við með jafnsterkt ef ekki sterkara lið en Norðmennirnir,“ sagði landsliðsmaðurinn Indriði Sigurðsson sem nýlega hafði vistaskipti í Noregi. Hann yfirgaf Lilleström og skipti yfir til Viking. ,,Hugarfarið hjá okkur er á þann veg að við viljum rétta okkar hlut í riðlinum og enda keppnina með sigurleik. Það yrði skelfilegt að enda með 4 stig,“ sagði Indriði sem er ánægður á nýja vinnustaðnum. ,,Það er aðeins meiri vinnufriður heldur en var hjá Lilleström og mér hefur gengið ágætlega í leikjunum,“ sagði Indriði sem að öllu óbreyttu leikur í stöðu vinstri bakvarðar gegn Norðmönnum í kvöld

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar