Helgi Hóseasson / minningar

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Helgi Hóseasson / minningar

Kaupa Í körfu

VEGFARENDUR hafa lagt blóm á bekk við Langholtsveg, þar sem Helgi Hóseasson, mótmælandi Íslands, stóð flesta daga með mótmælaspjöld sín. Þá hefur Alexander Freyr Einarsson sett upp síðu á Facebook þar sem hann hvetur til þess að minnisvarði um Helga verði settur upp á Langholtsvegi. Mörg þúsund manns hafa skráð sig inn á síðuna. Alexander Freyr sagði í samtali við mbl.is að hann væri alinn upp í Langholtshverfinu þar sem Helgi var hluti af umhverfinu. Hann hvetur alla til þess að skrá sig á síðuna og vonast til þess að borgaryfirvöld reisi minnisvarðann.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar