Make Up Store

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Make Up Store

Kaupa Í körfu

"ÞAÐ er mikið um gegnsætt gloss og varaliti," sagði Margrét R. Jónasardóttir í Make Up Store þegar haustlínurnar Czarinna og Babydoll voru kynntar þar nú í vikunni. MYNDATEXTI: Czarinna Innblásturinn að Czarinna línunni var fenginn frá rússneska keisaradæminu. Í línunni eru þrír dökkir og einn ljós augnskuggi, dökkir varablýantar, varagloss, varalitur og naglalakk auk vatnshelds maskara með glansi og dökkfjólubláum undirtón sem dregur fram augnlitinn. Á módelið var grænn og brúnn litur notaður í kringum augun. Þá var lítið af glossi sett á varirnar en mikið af varablýanti svo glossinn rynni ekki til.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar