Sigurvegarar

Heiðar Kristjánsson

Sigurvegarar

Kaupa Í körfu

NÚ ERU ljós úrslitin í samkeppni ferðavefjar mbl.is um bestu ferðasögu sumarins. Þátttaka var góð í keppninni en alls bárust liðlega 20 sögur. Tvenn verðlaun voru í boði – annars vegar ferð fyrir tvo með Iceland Express til einhvers áfangastaðar félagsins og hins vegar ferð fyrir tvo til einhvers áfangastaðar Flugfélags Íslands. Niðurstaða dómnefndar var sú að bestu ferðasögurnar teljast Ferð Ástu Bærings eftir Bjarna Halldórsson og Hestaferð á Löngufjörum eftir 12 ára stúlku frá Stykkishólmi, Halldóru Kristínu Lárusdóttur. Hreppir Bjarni ferðavinninginn hjá Iceland Express, en Halldóra ferðavinninginn með Flugfélagi Íslands. MYNDATEXTI Verðlaunahafar Halldóra Kristín Lárusdóttir og Bjarni Halldórsson urðu hlutskörpust í samkeppninni um bestu ferðasögurnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar