Ultratone

Ultratone

Kaupa Í körfu

ÞAÐ ber ekki mikið á fréttum af því að ný fyrirtæki séu stofnuð eftir hrun bankanna sl. haust. Það eru þó alltaf einhverjir sem láta kreppuna ekki stoppa sig og það á við um frænkurnar Margréti Einarsdóttur og Erlu Hönnu Hannesdóttur, sem opnuðu sitt eigið fyrirtæki sl. föstudag. „Við vorum orðnar leiðar á að vera heima,“ segir Margrét sem útskrifaðist sem tækniteiknari í vor en hefur ekki fengið starf sem slíkur enda lítið að gera hjá arkitektum í kjölfar hrunsins. Erla Hanna var hins vegar heimavinnandi húsmóðir. Það var svo í bíóferð fyrir sex vikum síðan sem hugmyndin að eigin ultratone rafbylgjumeðferðarstofu kviknaði. „Við höfum báðar prófað og vitum að þetta skilar árangri. Eftir umræður um fyrirtækjarekstur í bíóhléinu ákváðu þær að slá til, settu í fluggírinn og spörtluðu og máluðu á Reykjavíkurveginum af miklum móð til að geta opnað stofuna sem fékk hefur nafnið Ultraform.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar