Breiðablik - Keflavík

Breiðablik - Keflavík

Kaupa Í körfu

Í níundu tilraun tókst Breiðabliki að komast í bikarúrslitin eftir sigur á Keflavík, 3:2, í fjörugum og spennandi leik á Laugardalsvellinum í gær. Þetta verður í annað sinn í sögu Kópavogsliðsins sem það leikur til úrslita og hinir ungu leikmenn Breiðabliks ásamt gamla manninum Arnari Grétarssyni fögnuðu vel og innilega þegar lokaflautið gall við. Ekki nema von, því tvö síðustu árin hafa Blikarnir verið í tapliði í undanúrslitunum MYNDATEXTI Langþráð Blikar, með Kára Ársælsson fyrirliða fremstan í flokki, fagna því innilega að vera komnir í úrslitaleik bikarkeppninnar eftir sigur á Keflavík.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar