Hrollvekjandi

Hrollvekjandi

Kaupa Í körfu

NASISTAR risu upp frá dauðum í Sundhöllinni í gær. Ekki nóg með það, heldur ofsóttu þeir norska læknanema með blóðsúthellingum, í kvikmyndinni Död snö sem sýnd var á tjaldi milli sundlauganna í sérstöku sundlaugarbíói Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, RIFF. Gestir höfðu val um það að horfa á myndina svamlandi í vatni eða þurrir á sundlaugarbökkum. Hryllingsmyndaáhorf í sundlaugum hefur til þessa ekki verið stundað mikið á Íslandi en hver veit nema hefð skapist fyrir því í kjölfar sýningarinnar í gær? Sundlaugagestir skemmtu sér í það minnsta vel, þó að sjálfsagt hafi einhverjir orðið hræddir og jafnvel stungið sér á kaf til að komast undan nasistauppvakningunum MYNDATEXTI Stemmdir Þessir herramenn klæddu sig upp af tilefninu

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar