Glaðari gaflari

Glaðari gaflari

Kaupa Í körfu

ÚRSLIT í hugmyndaleitinni „Glaðari gaflar“ voru kunngjörð í gær. Mjög margar tillögur bárust um veggverk á húsgafla í Reykjavík og verða þrjár þeirra styrktar um 300 þúsund krónur hver. Verðlaunahugmyndirnar eru mjög frumlegar. Ein gerir ráð fyrir að sjónpípum verði komið fyrir á húsgöflum. Önnur gerir ráð fyrir að stálvírar verði strengdir milli tveggja gafla á lóðum húsa sem hafa verið fjarlægð og vírarnir teikni „strúktúr“ horfinna húsa. Sú þriðja gerir ráð fyrir að veggurinn verði málaður í þeim stíl sem hver og einn hefur áhuga á.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar