Skilveggur við Miklubraut

Skilveggur við Miklubraut

Kaupa Í körfu

FRAMKVÆMDIR hafa undanfarið staðið yfir við gerð nýrrar akreinar fyrir strætisvanga á Miklubraut, milli Stakkahlíðar og Kringlumýrarbrautar. Vegna framkvæmdanna hafa orðið nokkrar tafir á umferð austur Miklubraut og að gatnamótum Kringlumýrarbrautar. Eru ökumenn hvattir til að sýna aðgæslu þegar þeir eiga leið um Miklubrautina. Loka þarf gönguleiðum tímabundið á meðan unnið er á þessu svæði og eru gangandi vegfarendur beðnir um að nota gönguleið við Stigahlíð á meðan. Áætluð verklok eru 1. október næstkomandi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar