Elín Ebba og Héðinn

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Elín Ebba og Héðinn

Kaupa Í körfu

Mörg bjargráðanna sem geðsjúkir hafa þróað og nýtt í gegnum tíðina eru mikilvægur vísdómur fyrir þá sem í dag glíma við strembnar afleiðingar efnahagsþrenginga og atvinnuleysis. Þegar svartnætti kreppunnar ætlar að verða yfirþyrmandi með öllum sínum efnahagsörðugleikum, atvinnuleysi og áhyggjum er gott að vita til þess að í gegnum tíðina hefur safnast upp þekking í ákveðnum hópum á því hvernig best sé að takast á við slíka erfiðleika. Geðsjúkir og fólk með geðraskanir eru í raun sérfræðingar í að finna leiðir að ljósinu í myrkrinu og sú sérfræðiþekking er gríðarlega mikils virði í dag. Þetta vita þau Elín Ebba Ásmundsdóttir og Héðinn Unnsteinsson sem miðla þessari þekkingu til annarra á málþingum, sem reglulega eru haldin í bæjarfélögum á landsbyggðinni. Bæði eru þau þekkt fyrir starf sitt að geðræktarmálum, en Ebba er framkvæmdastýra Hlutverkaseturs og dósent við Háskólann á Akureyri og Héðinn starfar nú sem sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu. MYNDATEXTI Ráðagóð Elín Ebba Ásmundsdóttir og Héðinn Unnsteinsson segja lykilatriði að vera virkur eftir atvinnumissi og hafa dagskipulag

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar