Dvalarheimilið Ás í Hveragerði

Dvalarheimilið Ás í Hveragerði

Kaupa Í körfu

HEIMILISFÓLKIÐ í Ási getur sýslað við margt eftir því sem heilsa og kraftar leyfa. Þar er stór föndurstofa þar sem m.a. er unnið við ýmsar hannyrðir, smíðastofa og sumir leggja lið í gróðurhúsunum. Munir sem heimilisfólk útbýr eru til sölu í föndurstofunni við vægu verði. Una Runólfsdóttir var í gróðurhúsinu að lesa paprikur. Hún játaði því að hún væri með græna fingur og sagðist vinna í gróðurhúsinu þegar hana langaði til. MYNDATEXTI Grænir fingur Una Runólfsdóttir sagðist hafa mikla ánægju af að rækta. Hún hefur aðgang að skika í Hveragerði þar sem hún ræktar tré og runna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar