Arnór Þór Gunnarsson

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Arnór Þór Gunnarsson

Kaupa Í körfu

Hafnarfjarðarmótið í handknattleik hófst í gær en þá fóru fram tveir leikir í íþróttahúsinu við Strandgötu. Íslandsmeistarar Hauka höfðu betur gegn Akureyri í jöfnum og spennandi leik, 27:24. Björgvin Hólmgeirsson var markahæstur í liði Hauka með 6 mörk og þeir Pétur Pálsson, Elías Már Halldórsson og Þórður Rafn Guðmundsson gerðu 4 mörk hver. Birkir Ívar Guðmundsson, markvörður Hauka, átti stórleik og varði um 24 skot. Hjá Akureyringum var Oddur Grétarsson markahæstur með 6 mörk og Guðmundur Helgason skoraði 5. MYNDATEXTI Arnór Þór Gunnarsson

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar