Eldsvoði í Höfða

Eldsvoði í Höfða

Kaupa Í körfu

MIKLAR skemmdir urðu í bruna á hinu sögufræga húsi Höfða í Borgartúni í gær, en ómetanlegum gersemum tókst að bjarga. Eldur kviknaði á millilofti sem skilur á milli rishæðar og háalofts hússins og varð af því mikill eldsvoði. Eldurinn er talinn hafa átt upptök sín norðvestanmegin í þakinu en þar eru brunaskemmdirnar mestar enda skíðlogaði það horn um tíma. Húsið hefur verið opið gestum að undanförnu í tilefni hundrað ára afmælis þess en enginn var í húsinu þegar eldurinn kom upp. MYNDATEXTI Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri og Svanhildur Konráðsdóttir lögðu hönd á plóg við að bjarga verðmætum úr Höfða í gær. Vinnubrögð slökkviliðs og lögreglu voru fumlaus og snör.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar