Rafskinna - Útgáfu þriðja tölublaðs fagnað

Rafskinna - Útgáfu þriðja tölublaðs fagnað

Kaupa Í körfu

VALIÐ efni úr DVD-sjónritinu Rafskinnu verður sýnt í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi í samvinnu við kvikmyndahátíðina Nordisk Panorama í dag kl. 15 - 17, en kvikmyndahátíðin stendur yfir í Reykjavík dagana 25. - 30. september. Sýnt verður efni úr þeim þremur tölublöðum sem út hafa komið auk áður óbirts efnis. Rafskinna er DVD-sjónrit á íslensku og ensku sem inniheldur stuttmyndir, heimildamyndir, lifandi tónlistarflutning, myndlist, tónlistarmyndbönd og fleira, bæði eftir íslenska og erlenda listamenn. Aðgangur ókeypis.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar