Dexoris - Pétur og Jóhann

Dexoris - Pétur og Jóhann

Kaupa Í körfu

Íslenskir leikjahönnuðir hafa komið á markað leik fyrir iPod- og iPod Touch, Peter und Vlad Vefverslun Apple veitir skapandi Íslendingum mikil tækifæri NOKKURRA mánaða gamalt fyrirtæki, tölvuleikjaframleiðandinn Dexoris, hannaði í sumar tölvuleikinn Peter und Vlad og kom á markað fyrir Apple-græjurnar iPhone og iPod Touch. Leikurinn er nú til sölu í vefverslun Apple, Apple App Store. Einn af stofnendum og starfsmönnum fyrirtækisins, 22 ára gamall stærðfræðingur að nafni Jóhann Þ. Bergþórsson, segir þann möguleika að geta sent inn slíka leiki til Apple til sölu á vefverslun fyrirtækisins, veita skapandi Íslendingum gríðarleg tækifæri. MYNDATEXTI: Dexoris Pétur og Jóhann unnu eins og brjálæðingar að því að hanna leikinn sem er nú kominn á markað.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar