Haustkoss við Tjörnina

Haustkoss við Tjörnina

Kaupa Í körfu

ÞÓ AÐ lægðirnar geri landanum skráveifu þessa dagana styttir þó alltaf upp stund og stund. Slíka stund nýtti par nýlega við Tjörnina til að kyssast hlýjum kossi. Haustið er nú í algleymingi og litadýrð náttúrunnar hleypur upp og niður litaskalann eins og hann leggur sig. Enn eru þó sumar plöntur í fullum blóma og gleðja augu vegfarenda - rétt eins og þessi gulu blóm á Tjarnarbakkanum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar