Svavar Sigurðsson

Andrés Skúlason

Svavar Sigurðsson

Kaupa Í körfu

Það hefur verið til siðs um árabil að afhenda menningarverðlaun á aðalfundum Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Menningarverðlaun SSA hafa fallið í skaut einstaklinga sem skarað hafa þótt fram úr með framlagi sínu til austfirskrar menningar, þá hafa sömuleiðis einstakir viðburðir og hátíðir á svæðinu hlotið heiður þennan. Á aðalfundi SSA sem haldinn var að þessu sinni á Seyðisfirði var Hammond-hátíðin á Djúpavogi valin til menningarverðlauna fyrir árið 2009 og var Svavar Sigurðsson, forkólfur Hammond-hátíðar og fyrrverandi tónskólastjóri á Djúpavogi, heiðraður sérstaklega að þessu tilefni á hátíðardagskrá SSA síðastliðið föstudagskvöld.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar