U-21 Ísland - Danmörk Hólmar Örn Eyjólfsson

U-21 Ísland - Danmörk Hólmar Örn Eyjólfsson

Kaupa Í körfu

ENSKA knattspyrnufélagið West Ham hefur lánað varnarmanninn Hólmar Örn Eyjólfsson, leikmann íslenska 21-árs landsliðsins, til Cheltenham Town, sem leikur í 3. deild. Hólmar er lánaður þangað í einn mánuð, til að byrja með, og hann fer væntanlega beint í leikmannahópinn fyrir heimaleik gegn Notts County sem fram fer á morgun. Hólmar Örn er 19 ára gamall og kom til West Ham frá HK sumarið 2008. Hann lék með unglingaliði og varaliðinu síðasta vetur, og það sem af er þessu tímabili hefur hann verið í varaliðinu en ekki fengið tækifæri í aðalliðshópnum MYNDATEXTI Hólmar Örn Eyjólfsson

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar