Bjarni Felixson lýsir leik á Laugardalsvelli

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Bjarni Felixson lýsir leik á Laugardalsvelli

Kaupa Í körfu

LEIKIR helgarinnar voru fjörugir og gaman að lýsa þeim,“ segir Bjarni Felixson íþróttafréttamaður. Sem endranær var Bjarni á vaktinni um helgina og lýsti bikarúrslitaleikjum karla og kvenna í knattspyrnu fyrir hlustendum Ríkisútvarpsins. Á laugardag kepptu Fram og Breiðablik sín á milli um bikarinn þar sem síðarnefnda liðið sigraði eftir vítaspyrnukeppni. „Úrslitin í leik karlanna hefðu getað lent hvorum megin hryggjar sem var. Sama má segja um kvennaleikinn, enda þótt Valsstúlkur sigruðu Breiðablik í framlengingu,“ segir Bjarni Felixson. MYNDATEXTI Bjarni Felixson lýsti bikarleikjum helgarinnar, eins og hann hefur gert í áratugi. Kristrún Lilja Daðadóttir aðstoðaði hann í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar