Ísland - Georgía

Ísland - Georgía

Kaupa Í körfu

ÉG er ótrúlega spenntur og þakklátur fyrir að fá tækifæri að leika með þessu liði. Auðvitað er erfitt að yfirgefa HK en forsvarsmenn HK voru skilningsríkir. Þetta er því allt gert í góðu samkomulagi og ég mun áfram fylgjast með HK og hitta mína gömlu vini,“ sagði Gunnleifur Gunnleifsson, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, en hann gekk til liðs við Íslandsmeistaralið FH í gær. Gunnleifur, sem er 34 ára gamall, var samningsbundinn Kópavogsfélaginu út næsta tímabil en hann mat stöðuna þannig að það væri nauðsynlegt fyrir sig að leika í efstu deild hér á landi og keppa áfram um byrjunarliðsstöðuna í A-landsliðinu. MYNDATEXTI Landsliðsmarkvörðurinn Gunnleifur Gunnleifsson leikur með FH

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar