Æfing

Æfing

Kaupa Í körfu

SÆNSKA úrvalsdeildarliðið Helsingborg vill gera nýjan samning við Ólaf Inga Skúlason, landsliðsmann í knattspyrnu, en núgildandi samningur hans við félagið rennur út um áramótin. „Ég hef verið í viðræðum við Helsingborg um nýjan samning en ég hef beðið aðeins með að taka ákvörðun. Ég ætla að bíða og sjá hvort eitthvað annað býðst. Ég neita því ekki að ég hef mikinn áhuga á að reyna fyrir mér á meginlandi Evrópu og spila í vetrardeild en það verður bara að koma í ljós hvað verður,“ sagði Ólafur Ingi við Morgunblaðið en hann er í landsliðshópnum sem mætir Suður-Afríku á Laugardalsvellinum í kvöld MYNDATEXTI Ólafur Ingi Skúlason ætlar að líta í kringum sig.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar