Stjarnan - Fram 28-25

Stjarnan - Fram 28-25

Kaupa Í körfu

Stjörnumenn lönduðu sínum fyrsta sigri í N1 deild karla í handknattleik á þessari leiktíð þegar þeir fengu Framara heimsókn í Mýrina í gærkvöldi. Eftir frábæran kafla í fyrri hálfleik tókst Garðbæingum að hanga á forskoti sínu til leiksloka og sigruðu 28:25. Sigurinn hékk þó á horriminni því Fram minnkaði muninn í eitt mark þegar um mínúta var eftir af leiknum. Stórskyttan Vilhjálmur Halldórsson innsiglaði sigurinn í næstu sókn á eftir með þrumuskoti fyrir utan punktalínu. MYNDATEXTI Roland Valur Eradze sýndi gamalkunna takta í marki Stjörnunnar í gærkvöld og ver hér eitt skota Framara.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar