Hrafnkell Freyr Magnússon - kreppugler.is

Heiðar Kristjánsson

Hrafnkell Freyr Magnússon - kreppugler.is

Kaupa Í körfu

Þeir sem nota gleraugu þekkja að dýrt getur verið að endurnýja þau en verð á umgjörðum og glerjum hleypur oft á tugum þúsunda króna. Hrafnkell Freyr Magnússon tölvunarfræðingur hefur ráð við þessu en hann opnaði í sumar síðuna kreppugler.is þar sem hægt er að velja úr yfir 900 mismunandi umgjörðum í u.þ.b. 2.800 litasamsetningum og er verðið í flestum tilvikum undir 10.000 krónum. MYNDATEXTI: Ódýr gleraugu Hrafnkell Freyr Magnússon tölvunarfræðingur fékk nóg af því hversu dýr gleraugu eru og stofnaði því síðuna kreppugler.is.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar