Skjáreinn og mbl.is

Skjáreinn og mbl.is

Kaupa Í körfu

Fyrsti fréttatími Morgunblaðsins á SkjáEinum fór í loftið í vikunni, en hann verður á dagskrá SkjásEins kl. 18.50 alla virka daga og endursýndur kl. 21.50 samdægurs. Einnig verður hægt að horfa á hann á fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is. Undirbúningur hófst í byrjun september og kom Hlynur Sigurðsson fréttastjóri inn í þá vinnu fyrir tveim vikum. „Þetta hafa verið annasamar tvær vikur, að setja saman fréttapakkann og ákveða hvernig framsetningin ætti að vera,“ segir Hlynur. „Sú vinna lagðist annars vegar á framleiðendur SkjásEins, Elínu Sveinsdóttur og Birnu Ósk Hansdóttur, og hins vegar á teymið hér á Morgunblaðinu, mig, fréttamennina Dag Gunnarsson og Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur, tökumanninn Magnús Bergmann og Guðmund Ragnar Kristjánsson klippara. MYNDATEXTI Útsending Í mörg horn er að líta meðan á útsendingu stendur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar