AIRWAVES -

AIRWAVES -

Kaupa Í körfu

Áfram hélt maður að sprikla af tónfylltum unaði í Loftbylgjunum góðu á föstudagskvöldið. Ég byrjaði á því að kíkja á Pontiak Pilatus, sem inniheldur m.a. meðlimi úr sveitinni góðu Lokbrá. Kæruleysislegt, nett sýrt nýbylgjublúsrokk. Svo hentist ég niður á Hressó þar sem Trúbatrixur höfðu skipulagt kvöld. Hugmyndin á bak við þann félagsskap er snilld, og andrúmsloftið var þægilegt. Mysterious Marta var að leika þegar ég rak inn nefið, en tónleikarnir fóru fram í garðinum. Umgjörð, sem og tónlist, svínvirkaði. MYNDATEXTI Brimsýra Bárujárn klikkaði ekki frekar en fyrri daginn og fór á kostum í rokklastabælinu Sódómu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar