Eldur í húsi við Skólavörðustíg 40

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Eldur í húsi við Skólavörðustíg 40

Kaupa Í körfu

ENGAN sakaði þegar eldur var kveiktur í auðu timburhúsnæði við Skólavörðustíg í gærdag. Til stóð að gefa Reykjavíkurborg húsið en þau áform urðu að engu og verður það að öllum líkindum rifið. Þó svo að upptök eldsvoðans séu ekki staðfest þykir öruggt að í því hafi verið kveikt. Rafmagn var tekið af því á síðasta ári og hústökufólk hafði þar einhverja viðveru. Þá sáu vitni menn hlaupa burtu frá húsinu stuttu áður en eldsins varð vart. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins. Slökkvistarf gekk greiðlega en að sögn framkvæmdastjóra Samtímalistar ehf., eiganda hússins, er húsið mikið skemmt. Ráðgert er að reisa nýtt hús á reitnum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar