S.L.Á.T.U.R - Keppni í Hljómskálagarðinum

S.L.Á.T.U.R - Keppni í Hljómskálagarðinum

Kaupa Í körfu

SAMTÖKIN S.L.Á.T.U.R. (Samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík) stóðu fyrir íþróttakeppni laugardaginn sl. í Hljómskálagarðinum. Var þar keppt í frumsömdum íþróttagreinum og gafst kostur á mörgum heimsmetum, eins og gefur að skilja. Keppt var í hráka, hringstökki án atrennu, hringbolta, Face the Enemy, grast, minimaraþoni, knattleik með bundið fyrir augu og eyrnatappa- og tepokakasti. Hringbolti var valinn besta íþróttagreinin og hlaut höfundur hennar, Guðmundur Steinn Gunnarsson, farandverðlaunagrip samtakanna. MYNDATEXTI: Hráki Dómari metur munnvatnssöfnun.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar