Börn í Álftamýrarskóla fá endurskinsvesti

Börn í Álftamýrarskóla fá endurskinsvesti

Kaupa Í körfu

Í NÆSTU viku munu öll grunnskólabörn í 1.-3. bekk í Reykjavík fá endurskinsvesti að gjöf frá Reykjavíkurborg. Börnin eru hvött til að nota vestið á leið til og frá skóla og við önnur tækifæri, til dæmis á leið í tómstundarstarf, svo þau sjáist betur í umferðinni á dimmustu mánuðum ársins sem nú fara í hönd. Þá munu börn í 4.-6. bekk einnig fá afhent endurskinsmerki. Kjartan Magnússon, formaður menntaráðs, afhenti fyrstu vestin í gær í Álftamýrarskóla og krakkarnir í 1-3 bekk fylgja honum hér yfir gangbraut. Hann sagði krakkana hafa verið hæstánægða og þau hafi kallað þetta lögguvesti því lögreglan sem mætti á svæðið var einnig klædd slíku vesti

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar