Keðjuverkun

Keðjuverkun

Kaupa Í körfu

ÞRÍR hjólreiðakappar, þeir Árni Davíðsson, Árni Vigfússon og Morten Lange, stóðu í gærdag fyrir uppákomu á Lækjartorgi í þeim tilgangi að vekja athygli á hjólreiðum og að þær teljist fullgildur samgöngumáti. „Enn vantar talsvert upp á að hjólreiðar njóti fullrar viðurkenningar sem samgöngumáti þótt vissulega hafi þokast í áttina,“ segir Árni. Félagarnir sem hittust á Lækjartorgi í gær eru allir félagar í óformlegum hópi sem kemur saman síðasta föstudag í hverjum mánuði og hjólar saman – þangað sem vindurinn blæs mönnum og hugurinn ber þá.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar