Konukot

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Konukot

Kaupa Í körfu

Konukot er athvarf fyrir konur sem hafa hvergi höfði sínu að að halla. Þangað mega þær koma þótt þær séu undir áhrifum en mega ekki neyta vímuefna á staðnum. Konukot fagnar nú á haustmánuðum fimm ára afmæli og af því tilefni var rætt við konurnar sem bæði koma að starfseminni og hafa nýtt sér þjónustuna.... Í stríði við lífið Hún háði stríð daglega og óvinir leyndust í hverju horni, ýmist klæddir í einkennisföt eða larfa. Fjandmanninn mesta var barátta að forðast, því hann var hún sjálf. Með sprautuna að vopni þau mættust á kaldranalegum vígvelli. Þráin að finna fyrir nálinni yfirtók alla skynsamlega hugsun. Hún lét undan og áhyggjur og sorg hurfu um stund. MYNDATEXTI: Hún losar sig við verkfæri gærdagsins áður en hún heldur út. „Bara einu sinni enn,“ hugsar hún og nær í nýjan skammt. Sprautar sig og líður betur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar