Jóapakkar til Úkraínu

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Jóapakkar til Úkraínu

Kaupa Í körfu

Má gefa sleikjó?“ var fyrsta fyrirspurnin sem Einari Helga Ragnarssyni barst frá stelpunum sem tóku þátt í starfi KFUK í Lindakirkju á föstudag. Jú, Einar Helgi fullvissaði þær um að það væri í góðu lagi að gefa sleikjó líkt og annað nammi – bara ef hófs væri gætt. Stelpurnar höfðu mætt til fundarins vel birgar af leikföngum, fatnaði, sælgæti og svo að sjálfsögðu með tannbursta og tannkrem, sem samviskusamlega var skipt niður í skókassa sem nú verða færðir munaðarlausum börnum í Úkraínu í sjötta skipti. MYNDATEXTI Gjafmildar Fjölmörg leikföng rata í pakkana.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar