Björnin - Skautafélag Akureyrar

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Björnin - Skautafélag Akureyrar

Kaupa Í körfu

SKAUTAFÉLAG Akureyrar gerði góða ferð í höfuðborgina um helgina og vann öruggan sigur á Birninum í Egilshöllinni, 7:2. Það voru einungis tæpar fjórar mínútur liðnar af leiknum þegar Orri Blöndal kom gestunum á bragðið með fyrsta marki leiksins. Eftir það var jafnræði með liðunum en á síðustu fimm mínútum fyrstu lotunnar gerðu SA-menn út um leikinn með ótrúlegum leikkafla þar sem þeir skoruðu fjögur mörk gegn ráðalausum leikmönnum Bjarnarins. MYNDATEXTI Leikmenn SA gleðjast yfir einu markanna gegn Birninum

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar