Körfuboltamót barna í Grafarvogi

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Körfuboltamót barna í Grafarvogi

Kaupa Í körfu

RÚMLEGA 400 körfuboltakrakkar skemmtu sér konunglega í Grafarvogi um sl. helgi þar sem hið árlega Hópbílamót Fjölnis fór fram. Keppt var í íþróttahúsinu í Dalhúsum á fjórum völlum og tveimur völlum í Rimaskóla. Keppendur komu frá öllum hornum Íslands. Þar má nefna lið frá Patreksfirði, Ísafirði, Höfn á Hornafirði, Akranesi, Þorlákshöfn, Suðurnesjum og að sjálfsögðu höfuðborgarsvæðinu. Stelpu- og strákalið taka þátt og eru keppendur 11 ára og yngri. MYNDATEXTI Strákarnir úr Njarðvík gáfu sér tíma til þess að sinna fyrirsætustörfum á milli leikja í Grafarvogi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar