Umferðarskilti við Tjörnina

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Umferðarskilti við Tjörnina

Kaupa Í körfu

STARFSMENN Reykjavíkurborgar eru alltaf á ferðinni til að fegra borgina og betrumbæta. Ljósmyndarinn rakst á þessa tvo, sem voru að þrífa umferðarskilti á Skothúsvegi. Aur og selta höfðu sest á skiltin eins og gjarnan gerist á þessum árstíma. Mikið verkefni bíður svo starfsmanna borgarinnar þegar þeir byrja að hengja upp jólaskrautið þegar nær dregur aðventunni. Og í desember setja þeir upp Oslóarjólatréð á Austurvelli og þá verða allir klárir á því að jólin eru að ganga í garð.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar