Langárfoss

Einar Falur Ingólfsson

Langárfoss

Kaupa Í körfu

FÉLAG í eigu sex fyrrverandi stjórnenda Kaupþings, sem keypti á árunum 2002-2005 fjórar jarðir á Mýrum fyrir um 400 milljónir, skuldar í dag rúmlega einn milljarð króna. Lánin voru upphaflega tekin hjá SPRON og Sparisjóði Mýrasýslu en eru núna komin inn í Kaupþing. Allt bendir til að bankinn verði fyrir tjóni upp á hundruð milljóna króna vegna þessara viðskipta. MYNDATEXTI Langárfoss við Langá er ein verðmætasta laxveiðijörð landsins. Hvítsstaðir ehf. keypti jörðina af Jóhannesi Kristinssyni á 300 milljónir. Kaupin voru fjármögnuð með kúluláni. Myndin sýnir neðsta veiðistað Langár.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar