Fálki

Hafþór Hreiðarsson

Fálki

Kaupa Í körfu

Af lífi og sál er yfirskrift ljósmyndasamkeppni fréttaritara Morgunblaðsins. Vísar heitið til áhuga ljósmyndaranna og viðfangsefnis þeirra sem er líf og starf fólksins á landsbyggðinni. Ljósmyndasamkeppnin tók til mynda sem teknar voru á síðasta ári. MYNDATEXTI Fálkinn herjar sífellt meira á Húsavík sem er í nágrenni aðalútbreiðslusvæðis hans. Þar nær hann sér í endur og sjófugla og hefur nóg að bíta og brenna. Gott útsýni er yfir mannlífið og fuglalífið af ljósastaurunum. Hafþór Hreiðarsson fréttaritari myndaði þennan tignarlega fugl þegar hann tók flugið á ný.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar