Fylkir - Valur

Fylkir - Valur

Kaupa Í körfu

VALUR, Haukar, FH og b-lið Víkings tryggðu sér í gærkvöld sæti í átta liða úrslitunum í bikarkeppni kvenna í handknattleik. Valskonur, sem eru efstar í úrvalsdeildinni, lentu í kröppum dansi gegn Fylki í Árbænum. Staðan eftir framlengingu var 21:21 en Valur knúði fram sigur, 28:25. Katrín Andrésdóttir skoraði 7 mörk fyrir Val og Íris Ásta Pétursdóttir 6 en Nataly Valencia gerði 8 mörk fyrir Fylki. MYNDATEXTI Barningur Sigríður Hauksdóttir úr Fylki og Ágústa Edda Björnsdóttir úr Val takast á í Fylkishöllinni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar