Tónlistarhúsið glerjað

Tónlistarhúsið glerjað

Kaupa Í körfu

Starfsmenn ÍAV þurfa að stilla vel saman strengina þegar þeir eru að glerja tónlistar- og ráðstefnuhúsið við Austurhöfnina. Langar rúður eru hífðar upp með krönum og þar taka mennirnir við og festa þær. Framkvæmdum við húsið miðar vel áfram og útlit fyrir að steypuvinnu ljúki í þessum mánuði. Nýlega var síðasti stálbitinn hífður upp á þak aðalsalar tónlistarhússins. Um 300 menn vinna við bygginguna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar