Fjölnir - KR

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Fjölnir - KR

Kaupa Í körfu

NÝLIÐAR Fjölnis eru enn án sigurs í Iceland Express-deild karla í körfuknattleik. Þeir fengu Íslandsmeistara KR í heimsókn í Grafarvoginn í gærkvöldi í 6. umferð deildarinnar. KR-ingar sigruðu örugglega 100:71 en þeir voru jafnframt yfir í hálfleik 44:32. KR er í 2.-4. sæti deildarinnar með 10 stig ásamt Stjörnunni og Keflavík. Fjölnismenn deila hins vegar neðsta sætinu með FSu en Breiðablik er tveimur stigum fyrir ofan fallsætin. MYNDATEXTI Tommy Johnson reynir að brjóta sér leið að körfu Fjölnis.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar