Kringlan

Kringlan

Kaupa Í körfu

GESTUM Kringlunnar það sem af er ári hefur fækkað um þrjú prósent frá sama tímabili í fyrra. Má segja að kaupmenn í Kringlunni geti verið nokkuð ánægðir miðað við ástandið, en spáð hefur verið allt að 30% samdrætti í einkaneyslu á árinu. Fjöldi gesta í fyrra stóð nokkurn veginn í stað frá árinu áður. Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri rekstrarfélags Kringlunnar, segir kaupmenn í Kringlunni finna fyrir minni verslun Íslendinga erlendis. Þeir sem selja vörur á borð við barnaföt, sem fólk hefur hingað til gjarnan keypt erlendis, hafi t.d. sjaldan upplifað jafnmikla sölu. Einnig muni um fjölgun ferðamanna til landsins, en slegið var met í endurgreiðslu virðisaukaskatts í sumar. MYNDATEXTI Kringlan Nóg að gera í kreppunni

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar