Dance Centre - Iðnó - 211109

Dance Centre - Iðnó - 211109

Kaupa Í körfu

Dansa, hvað er betra en að dansa? var eitt sinn spurt í dægurlagi og sjálfsagt kunna forsvarsmenn og iðkendur í dansskólanum DanceCenter Reykjavík svarið við því: Er nokkuð betra? Fátt. Dansgleðin var sannarlega í fyrirrúmi á jólasýningu skólans sem fór fram í DanceCenter Reykjavík laugardaginn sl. í Iðnó. Nemendur skólans á öllum aldri stigu dans og voru dansstílarnir fjölbreyttir, m.a. djassballett, djassfunk, modern funk, hip hop, street og ballett. Jólasveinar voru einnig á vappi, gáfu heppnum krílum mandarínur og sprelluðu fyrir gesti. Myndirnar tala annars sínu máli.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar