Laufabrauðsbakstur

Laufabrauðsbakstur

Kaupa Í körfu

Inga Jakobína Arnardóttir og hennar fjölskylda hafa bakað og skorið út laufabrauð saman fyrir hver jól í 22 ár en þau byrjuðu á því árið 1987. Þá voru það þrjár kynslóðir sem hittust og alls 17 manns. Núna hefur fjórða kynslóðin bæst við og þau eru 35 þegar mest er. „Þetta er sem sagt mamma og bróðir hennar, börn og barnabörn sem hittast. Við vorum sex systkinabörn þegar þetta byrjaði og komin mislangt með að mynda fjölskyldur þannig að þetta hefur vaxið mjög,“ segir Inga Jakobína sem viðurkennir að vissulega sé þátttakan misgóð MYNDATEXTI Inga Jakobína Arnardóttir: „Okkur finnst uppskriftin sem við notum langbest en við setjum örlítinn sykur út í deigið. Ég held það sé þess vegna sem okkur finnst það svo gott og við breytum því náttúrlega ekkert.“

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar