Starfsmenn Kringlunnar skreyta jólatréð

Starfsmenn Kringlunnar skreyta jólatréð

Kaupa Í körfu

NÚ KVIKNAR á jólatrjánum einu af öðru um borg og bý og í dag kl. 14 verður kveikt á jólatrénu í Kringlunni. Sveppi tendrar ljósin og sprellar eitthvað í leiðinni. Við sama tækifæri hefst góðgerðarsöfnun á jólapökkum undir jólatréð. Unnið var að því í gær að hengja skraut á jólatréð. Jólapakkasöfnunin er í samstarfi Kringlunnar, Mæðrastyrksnefndar og Fjölskylduhjálpar Íslands og er árviss viðburður á aðventunni. Fyrir síðustu jól bárust 5.000 gjafir í söfnunina og Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálp útdeildu pökkunum til fjölskyldna sem hafa úr litlu að moða.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar