Valur - Haukar

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Valur - Haukar

Kaupa Í körfu

DÓMARAPARIÐ Anton Pálsson og Hlynur Leifsson gerði sig sekt um mistök undir lok stórleiks Vals og Hauka í Vodafonehöllinni í gær. Freyr Brynjarsson fékk réttilega að líta rauða spjaldið hjá þeim félögum þegar hann kom í veg fyrir að Valsmenn gætu tekið miðju á lokasekúndunum. Fannar Þór Friðgeirsson sýndi af sér afar óíþróttamannslega hegðun í kjölfarið þegar hann kastaði knettinum af fullum krafti í mjóbakið á Frey. Eitthvað tóku þeir Anton og Hlynur vitlaust eftir, því þeir ráku varnarjaxlinn Ingvar Árnason af velli í stað Fannars. Morgunblaðinu er ekki kunnugt um hvernig dómararnir gengu frá leikskýrslunni en forvitnilegt verður að sjá hvernig aganefnd HSÍ mun taka á málinu. Til hægri má sjá Anton Gylfa dómara með rauða spjaldið á lofti. Því er beint að Ingvari, sem er lengst til vinstri, en á meðan gengur sökudólgurinn, Fannar, hinn rólegasti framhjá dómaranum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar