Haukar - Fram

hag / Haraldur Guðjónsson

Haukar - Fram

Kaupa Í körfu

DANÍEL Berg Grétarsson og Jóhann Gunnar Einarsson, handknattleiksmennirnir sem léku með Al Ahli frá Sádi-Arabíu í Asíukeppni félagsliða í handknattleik um tveggja vikna skeið í síðasta mánuði geta ekki fengið félagsskipti yfir til þýska liðsins MEG Kassel fyrr en í næsta mánuði. Ástæðan er sú að lokað er fyrir félagsskipti í Þýskalandi um þessar mundir. Þeir félagar léku með MEG Kassel frá því leiktíðin hófst í september og allt fram í byrjun nóvember þegar þeir fengu freistandi tilboð frá Al Ahli um að leika með liðinu um tíma í fyrrgreindri Asíukeppni þar sem liðið hafnaði í fimmta sæti. MYNDATEXTI Jóhann Gunnar Einarsson

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar