Jólasveinarnir fóru í jarðböðin

Birkir Fanndal Haraldsson

Jólasveinarnir fóru í jarðböðin

Kaupa Í körfu

TÖLUVERÐUR mannfjöldi, einkum börn, varð vitni að því síðdegis á laugardag að nokkrir jólasveinar heimsóttu jarðböðin í Mývatnssveit, en að sögn er það hefð meðal þeirra að gera sér eina ferð í jarðböðin fyrir hver jól. Jólasveininn Stúfur var að sögn nokkuð ósáttur við vatnið og fór ekki út í, en reyndi að stjórna fjöldasöng á meðan félagar hans afklæddu sig og fór í prjónabrækur áður en þeir skelltu sér í lónið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar